Klukkan

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

...ađ fá sér...ađ halda sér og háma í sig svo Köku

05. mars 2008 klukkan 13:39
heysan, 

there is only one Flamini...

stórkostleg yfirspilun í gær...og taka þær ítölsku.


bragðgóð og vot húsavíkur helgi að baki...frábær helgi


there is only one gunni jó

jæsan
Röđull Reyr Kárason
4 athugasemdir

HVAR VĆRU LJÓTIR HÁLFVITAR ÁN ŢESS AĐ HAFA LJÓTAN HÁLFVITA MEĐ Í FÖR?

28. febrúar 2008 klukkan 16:08
heysan,

er ekki alveg að halda mér hér í skólanum og ætla því að skella mér norður á morgun (fös) mjög svo snemma.
...skil samnemendur eftir í skítnum....bókstaflega


...fæ að fljóta með ljótum hálfvitum vorum...


...Fór á Rambó með Karli kaupfélagsins, jöjis1800 og Alla þorgríms á þri...Rosalegt. Það er ótrúlegt afrek að gera lélegustu mynd af bestu mynd sem maður hefur séð lengi...djöfull voru margir drepnir og ekkert verið að fela það.

jæa vona að ég sjái einhverja góða á víkini...

jæsa
Röđull Reyr Kárason
4 athugasemdir

hvar er ég?

21. febrúar 2008 klukkan 01:13
jæja

hjörtur heiti ég ármannson og les veðurfréttir....

...nei ég heiti það ekki neitt, þrátt fyrir mesta vind á stórhöfða.

ég heiti röðull.

blöndós nv frost 1 stig
vsv 7 á mánarbakka

7 10 á kárahnjúkum

...ætli ég sé mættur aftur?
held það gunni jó

dettur ekki inn daughter eftir veðurfréttir á gufuni nema að yngvos para sembre sé að fikta.

smá guinness fyrringur í mér...stórgóð firmakeppni hjá mínum áðan gegn spilltum. Það er alltaf gott að ná jafntefli í Bárðardalnum.


ef menn neyðast í bíó og þrátt fyrir að rambó sé í spilun þá verða menn að sja  ...no country for old men...gömlu bræður í kóen að missa sig.



ótrúlegt að ritla aftur...

...verð að koma með færslu um málefni sem við yngvos lopi og ljótur Toggi áttum í kvöld...ótrúlega vitibornar miðað við geðshræringu og almennt vitsmunastig...


...þetta er greinilega ekki gufan enda ótrúlegt ef hún spilaði tvö pj lög í röð.

eru gunni jó og gunnastína eitthva að græja það?
Röđull Reyr Kárason
6 athugasemdir

you are walking in the world of pain

09. nóvember 2007 klukkan 10:30
heysan,

sko er ekki nóvember kominn með allt sitt þunglyndi og bölmóð. Dagar 10 svartir sem negrastrákar að hottintottast. Bið ég þess að hinn bjarti kynstofn dagmálana hefji sín reið. 

Einsog fótbolti er yndisleg, þá er til svo margt óyndislegt við hann, t.a.m Martin Keown.  Hvernig ætli fyrirsætu bransinn gangi hjá honum?

Hryllilega gaman núna í skólanum. Er að klára 1. viku af 5. Erum í hópverkefni (4stk) og erum að fjalla um arkitektafyrirbærið CASE STUDY HOUSES sem er áhugavert. 
Fyrirlestur og leisershow eftir 10 daga og þá tekur við einstkl.verkefnið - að hanna hús útfrá þeim á raunverulegri lóð...sem við vitum ekki hvar er en fáum að vita á mán.
lúkkar vel

kvikmyndaþemapartý í lhí í kvöld - stefni á að vera Walter (aka. John Goodman) í Big Lebowski...

...og hana nú
Röđull Reyr Kárason
2 athugasemdir

...og fá sér

26. október 2007 klukkan 21:32
heysan,

...er á skúla (þjóðareignin)...með góðum agga og yngvos...fórum á highlander og fengum okkur að snæða guinness og svo á kaffisetrið...erum góðir


...ætlum að fá sér....


...ekkert að því

kveðjur bestar...bið sérstaklega að heilsa gunna jó



Röđull Reyr Kárason
1 athugasemd

...og vaka svo

25. október 2007 klukkan 17:04
heysan, 

vil fyrst minnast á óborganlegan penna sem hefur sprottið fram á ritvöllinn, tja ritlvöllinn...  www.glefsur.blogspot.com, en það er hann móksi litli, drýpur af honum spekin, maður hálf eða bara skammast sín til fullnustu með sitt auma ritl, þó ég viti að margir njóti og er það vel.


...fyrsta yfirferð, alvöruyfirferð lokið. Gekk ágætlega miðað við að ég var búinn að vaka yfir 30 tíma til að klára dæmið - svo seinvirkur og tregur...tja aðalega með svo margar stórutær er kemur að fíngerðu módelsmíði.
...ekki nóg með að það væri yfirferð heldur var einnig próf í hugmynda - og táknfræði sem hingað til hefur verið allmikið torf og á stundum óskiljanlegt með öllu...hver skilur ekki Derrida, Cixous, Levi-Strauss (ekki 501 samt sko), Michel Foucault, Flusser osfrv...gekk reyndar þrusu vel miðað við að vera ólesin og ber því að þakka ljósritaðar glósur sem ég fékk hjá nemendum sem höfðu hist og rætt málin ...hryllilega þægilegt, kom mér af stað.

...eigum við eitthvað að tala um gengi arsenal? nei ætla að bíða með það fram yfir næstu 2 leiki...en eitthva segir 39 skoruð mörk á móti 6 mörkum í 15 leikjum, það gera það ekki rúmmlega 6 mörk skoruð á móti hverju marki fengið á sig.... en nóg um það...lifrapollur á sun og best að vera ekki of góðglaður
Röđull Reyr Kárason
Engin athugasemd

gleymdar helgar

19. október 2007 klukkan 18:27
heysan, 

Hef lítið gert grein fyrir helgum. jú ástæðan er sú að yfirleitt man ég þær ekki. Svoleiðis er ástandið á þeim bænum. 
...fór reyndar með yngva og óla félaga hans í vísindaferð sagnfræðinema HÍ í Árbæjarsafn...sú ferð var söguleg en þó ekki nægjanlega til að greina frá því hér.  Þótti mér tilhlýðilegt að snæða öl í Vopnafjarðarhúsinu (1 af tveim) þar. Endaði þetta allt saman tvistingi um hist og hér (einnig átti ég heimboð á hverfisbarinn í lhípartý...vondur staður hverfisbarinn). Er þetta orðið svolítið þreytt, allir staðir eitthvað hálf lalala..

Hef ekki séð mikið af kögglum, en bragabót varð að því í gær er við hornrétt borð settumst við nokkrir og er nú ákveðið að hafa fimmtudagshitting á...já rétt til getið, á fimmtudögum og það annan hvern takk fyrir...geypi gaman að því. 

...jæsa eyjólfur hressist ekkert og mætti til tilbreytingar axla ábyrgð fyrstur íslendinga. Likkenstæn er og á ekki að standa í okkur, hvað þá gjörsigra. Versta er að þessi leikur var eingöngu áframhald á hnignandi stöðu landsliðsins. Áfram kvennalandsliðið, það er mitt lið. 
...landsliðið virðist þjást af því sem arsenal þjáðist á sl. tímabili og jafnvel því sem þar á undan fór og kallast henryisminn, við höfum bara eiðisma...sé margt sambærilegt þar á milli sem ég nenni ekki að rekja hér því nú er mér að bjóðast far  heim og gríp það fegins hendi...

...vil benda á könnun hér til hliðar...vissulega staðbundin og lífsháttabundin en þeir taka þátt serm taka þátt. 

ble.




Röđull Reyr Kárason
Engin athugasemd

zzzzz zzzz zzzz

11. október 2007 klukkan 15:17
fokking heysan,

er búinn að vera vakandi síðan kl 07:00 á miðvikudagsmorgni, já ég veit að það er fimtudagur í dag...og þar að auki yfirferð og tilheyrandi bið og leiðindi og táknfræði eftir hádegi þar sem endað var á broti úr mynd eftir David Lynch, ekki alveg rétti leikstjórinn ef þú ert að berjast við að halda þér vakandi eftir all langa vöku...hefði verið fínt að fá chaplin...s.s smá módelasmíði hjá mínum...enginn strætó.

kíkið á þetta   http://youtube.com/watch?v=2kb7emyZJMc   

..nei því miður ekki módelið mitt, heldur á Breiði heiðurinn af því ásamt samnemendum sínum. 

http://www.island.is/ordskyringar/stafrof/f 
skoðaðu þetta sun - þú virðist hafa rétt fyrir þér. læt mig samt ekki strax. 

jæsa, ætla heim að sofa


Röđull Reyr Kárason
1 athugasemd

strćtó 2

09. október 2007 klukkan 11:05
heysan, 


strætó tekinn snemmpart dags enda stefnt á að stjórna umræðu um texta heidegger. Hann nánast frumlesinn í strætó. 

Það var úgglendingur í strætó í dag, reyndar margir og í raun voru þeir í meirihluta. En þessi flautaði reglulega, tjaa reyndi að flauta það kom bara loft útúr honum en ekkert hljóð. Þegar hann fór svo reglulega að segja á bjagaðri ensku "execute"  þá varð ég smeykur...var hann með bombu í brjóstvasanum? Sagði hann þetta svo oftar og með meiri áherslum í hvert skiptið, þess á milli "blístraði" hann. Sem betur fer kann hann ekki að blístra því það hefur örugglega verið merkið um að sprengja...hjúkkit. 


ble
Röđull Reyr Kárason
5 athugasemdir

...og halda sér

08. október 2007 klukkan 21:38
heysan aftur,

nú er klukkan að verða hálf tíu og aðeins 3 atriði eftir á dagskránni svo
að maður komist sómasamlega frá morgundeginum í skólanum.

því miður alltof mikið af frumlestri framundan í nótt og því miður lítið af 
spítti til í bæjargilinu fyrst að sveitungi minn var tekinn á skútuni fyrir 
austan á um daginn.

...helgin var pollróleg ef maður tekur laugardaginn út úr dæminu. En gaman þó
...til tilbreytingar var himmi vinur minn um helgina og bauð ekkert upp á skot og bjór líkt og um sl. helgi er hann kjöldró okkur yngva með sér að barnum, kvað hátt við og sagðist ætla að fá 3 bjóra og 3 skot. Er dýrindið var komið á barborðið litum við yngvi í kringum okkur enda snáðinn hennar rikku horfinn, ekki langt en uppí opið ginið á smalastúlku og þrátt fyrir ýmsar nýjungar í fjarskiptatækni og útrás náðum við engu tauti við drenginn enda gat hann ekkert svarað með tunguna á sér vafða um vélindað á fórnarlambinu. Við yngvi borguðum brúsann.  Himmi þú skuldar mér enn.

skemmtum okkur sem eftir leið kvölds með sun og birnu geirfinns

í strætó skulum við skunda 
Röđull Reyr Kárason
1 athugasemd